3.5.2008 | 21:49
Robyn- cobrastyle
Hæ.
Prófavika í gangi.. það alltaf jafn gaman.
ég er í 6 prófum minnir mig. Átti að fara í próf á föstudaginn en var veik svo ég þarf að taka sjúkrapróf sem er mánudaginn eftir að öll hin prófin eru búin
þá get ég ekki fagnað með hinum! væl.
Ég átti afmæli núna fyrir nokkrum dögum, 26.apríl. Ég er nú frekar móðguð út í ættingja mína, eða svona flesta. Allir virðast hafa gleymt mér. Meira að segja amma og afi hafa ekki óskað mér til hamingju, mér finnst það nú frekar stórt að þau skyldu gleyma mér.. en það verður bara að hafa það. Ég býð þeim þá bara ekkert í afmæliskaffið mitt
.. þ.e.a.s ef ég losna nú einhverntíman við Þetta kvef og get haldið það.
Ég á enn eftir að fá mér vinnu. Ég er svo picky, langar svo að vinna úti svo ég fái eitthvað tan, en það er ekki um það mikið að velja. Sótti um í sumartím en fékk ekki. Þau vildu ráða þá sem voru eldri.
Er líka búin að sækja um á öðrum útistöðum og ef ég fæ ekkert verð ég öruglega bara í the bakery eða á sjúkrahúsinu, held að það vanti alltaf þar.
Held ég þurfi svo að fara að mæta aftur á fótboltaæfingar, ég er dottin úr öllu formi grunar mig !!
104 dagar þangað til að ég fer til Tenerife
það verður svo frábært !
"Sundlaugaraðstaðan er óviðjafnanleg, í hjarta (hótel)garðsins er 10.000 fermetra sundlaug ..."
-aðeins stærri en hérna heima!!
" Einnig eru tugir verslana staðsettar undir hótelinu. í janúar 2008 opnar ný og glæsileg líkamsræktarstöð"
- 

14 dagar af þessu áður en skólinn byrjar!
ekki slæmt
Annars leiddist mér bara því halldór ætlaði að vera búinn að hringja
svo ákvað að skrifa eitthvað smá.
en ætli ég fari ekki bara að læra.
..eða horfa aftur á Return to oz, uppáhaldsmyndina mína síðan ég var lítil. 
Mig grunar að ég viti núna af hverju trúðafóbían mín byrjaði!
enjá bæbæ.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 20:31
my eskimo friend
hæ.
mig langar í sítt hár.. ótrúlega sítt hár, svona þykkt og liðað og kannski brúnt en kannski ekki.. mig langar alltaf að breyta hárlitnum mínum - en nenni samt ekki að eyða 20-30 þúsund í að þurfa að lita það svo aftur ef mér finnst liturinn ekki flottur !
þetta er vesen :(
var að vinna í dag, og fékk númer 
jebb.. einhver strákur kom til hugrúnar lilju með miða í dag, spurði eitthvað um mig og bað hana svo um að láta mig fá miðann.. og var þá ekki bara númerið hans í miðanum ! ..reyndar henti ég nú bara miðanum, en það er alltaf gott að vita að maður hefur þetta enn
Últra mega teknúbandið stefán ! það er ekki útaf engu sem ég heiti þetta á msn.. ótrúlega kúl hljómsveit ! mæli með að þú tjékkir !
svo var svona aðal ástæða mín fyrir þessu bloggi að auglýsa gömly síðuna hennar elínar, síðan svona úr 7 og 8 bekk held ég; haha "við sem dolls" , "við ef við værum svartar" og eitthvað svipað :')
..svo má ekki gleyma ofurpósunum hjá okkur, við vorum sko gellur !
http://folk.is/kiss88/
svo vorum við elín og áslaug einnig mjög duglegar við að gera myndbönd á þessum tíma, tókum upp pimp myndband (við elín í loðfeldum að rappa) , "gelgjur í helvíti, smábörn á himnum" (það var einnig með okkur elínu í aðalhlutverkum-ég þarf að fara að finna það, setja kannski á netið ha stelpur
, og svo var það stæling á 70 mín myndbandinu fræga, "crazy bastard" (okkar var reyndar ekki fullklárað en lofaði samt góðu)
haha svo var eitthvað meira, við með stunt og eitthvað álíka gáfað !
enjú laugardagskvöld, klukkan orðin 20:27 og ég er að spá í að fara að gera eitthvað af viti ..
drekka mig fulla og hanga fyrir utan barinn !
sjáumst!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.1.2008 | 15:54
02.01.08
Gleðilegt nýtt ár !
Ætla bara svona að segja aðeins frá 2007 :)
2007;
-Það var djammað
-og djammað..
-fór á tónleika með Incubus með elsu og það var geðveikt !
-átti afmæli en ekkert bílpróf..
-skrapp í heimsókn til elínar á ísafjörð, það er bara ágætur bær.. fengum okkur aðeins í glas og enduðum svo í golfi með einum úr herra ísland (
)og palla í asnalegasta grímubúning sem ég hef séð hlaupandi á eftir kúlunum !
-vann í bakaríinu með áslaugu og við áttum okkar móment!
-fitnaði líka helling við að vinna þarna 
-ætlaði að fara til DK með svölu en því þurfti að fresta vegna óviðráðanlegra ástæðna.. bara fara á þessu ári svala, hah ?
-Versló var ekki alveg eins góð og ég vonaði vegna banns á unglingum alls staðar.. en í stað þess að vera í blautu tjaldi á ak endaði ég á gistiheimili í miðbænum, rosa fínt 
-endaði svo verslóhelgina á balli á sigló með palla ! -í þeirri ferð klifraði áslaug m.a. yfir grindverk með þeim afleiðingum að detta á borð, ég var bitin af öfundsjúkri gellu í hendina og það skemmtilegasta; nældi mér í eitt stykki kærasta 
-Var fyrir sunnan á menninganótt, það hefði nú alveg mátt vera skemmtilegra samt.
-Fór til portúgals með áslaugu í ógleymanlega ferð, shit hvað við verðum að fara aftur !
-2. árið í fnv.. jibbý.
-Fór á palla eftir skemmtilegasta staffapartý sem ég hef farið í (og það eina reyndar
) við áslaug og ragnhildur tókum dóttir einnar sem vinnur með okkur á ball,. pólsk stelpa sem heitir Katarchina eða eitthvað þvíumlíkt, allavegana er það sagt svona.. en við kölluðum hana nú samt bara Kötu.
-Loksins kom bílprófið..
-löngunin í að vera blindfull niðrí bæ minnkaði heilmikið og ég var meira í því að vera bara heima að kúra.. já eða horfa á kærastann í lotro 
-Svo komu jólaprófin en ég ætla ekki að setja einkunirnar mínar hér inn, finnst það frekar lummó,. já eða mínar bara ekki nógu góðar til að auglýsa..
-svo jólin og þá var unnið, bæði í bakaríinu og skaffó, þar sem ég komst meðal annars að því að sigurlaug er kannski ekki svo vitlaus að fíla þessa kóra.. álftagerðisbræður eru ekki það slæmir, ég allaveganna raulaði lög eftir þá allan daginn eftir að þeir kíktu í skaffó !
-Komst líka að því að litla systir mín biður til guðs um brjóstarhaldara í skóinn (þá meina á anna sóley)
-svo áramótin; við halldór vorum öruglega þau einu edrú, eða allaveganna með þeim fáu.
Horfðum á áramótaskaupið heima hjá honum með foreldrum hans og ömmu hans og afa,. þau eru með þeim sætustu gamlafólks pari sem ég hef séð !! ótrúlega krúttlegt fólk
tókum svo rúnt um bæinn að kíkja á fólkið.. haha sumir ölvaðri en aðrir auðvitað.. tókum bigga upp í bílinn í smá, segjum bara að hann hafi verið með hressara fólki sem ég hef séð !
Svona var það sem ég man að gerðist á seinasta ári, ég er auðvitað að gleyma einhverju.. en það var þá bara ekki eins skemmtilegt 
Já svo myndirnar frá helginni, þær koma um leið og ég finn snúruna fyrir myndavélina !
og já svo vantar mig skannara til að geta sett polaroid myndirnar inn,. þær voru flottastar !
thelma .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.12.2007 | 18:58
ótitlað
jæja þá er ég komin með bloggsíðu, þarf aðeins að fá að vera með í þessum bloggheimi 
haha var að velja mér svona mynd sem á að vera efst á síðunni og það sem ég gat meðal annars valið voru neon sveppir, tómatar í myrki og svo eitt sem hét fjallmyndarlegt, það fannst mér sniðugt !
Jólin búin, eða þannig og mér leiðist að vita það að ég þarf að fara á mæta í skólann eftir nokkra daga, þetta er búið að líða alltof fljótt. Svo fór ég ekki í neitt jólaskap eiginlega, eða bara auðvitað þegar ég fór í kirkjunna klukkan 6 á aðfangadag. Ég var reyndar að sofna, en sá þá að gamla konan á bekknum fyrir framan mig var líka að sofna svo ég ákvað heldur að horfa á hana og hlægja.. það lét líka messuna líða miklu hraðar 
fékk ýmislegt í jólagjöf, m.a. svona polaroid myndavél frá Halldóri, ýkt kúl vél sem ég á eftir að nota mikið, svona þegar ég fæ rétta tækifærið til þess !
Ég var að vinna svo mikið og komst þess vegna ekki í það að kaupa handa honum gjöf en mundi svo að honum langaði í fiska eða páfagauka svo ég ákvað að redda mér aðeins og gaf honum fiska ^^
.. sem ég hefði kannski ekki átt að gera, því hann er að reyna að fita þá og drepa
..ég passa þá samt svo hann fær ekki að gera þeim mein.
-svo svona svo fólk haldi ekki að ég sé algjör þá erum við að fara á ak við tækifæri og ég ætla að láta hann velja eitthvað á sig þá !
Svo er "jólaboð" heima hjá mér á morgun (laug) eða svona eiginlega. Stelpurnar ætla að kíkja, svo langt síðan við höfum allar hist, allar orðnar svo giftar eitthvað.
en já samsagt þá ætlum við bara að hittast,spjalla og svo máttu þær taka með sér eitthvað gotterý ef þeim langaði 
haha elska þessa kalla sem hægt er að gera, ég á eftir að nota mér þá mikið !
Enjá þarf að fara að koma mér, lofaði mínum heittelskaða að ég myndi koma á réttum tíma á leikinn, svona einu sinni 
-set myndir frá laug kvöldinu inná á sunnudaginn !
sjáumst,
thelma
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)


666





